Kauptu hlut í íbúðinni, búðu í henni allri
ÞG Verk býður sameignarlausn í sínum verkefnum í samstarfi við Aparta. Þú leggur fram að lágmarki 10% af kaupverði fasteignar og ÞG Sjóður leggur til allt að 20% á móti. Við kaupum eignina saman, en þú býrð í henni með 100% afnotarétti.
Þitt eigið fé
ÞG Sjóður kaupir
Íbúðalán
Svona virkar það
Finndu nýja heimilið þitt
Finndu ÞG Verk-eignina sem hentar þér. Segðu fasteignasalanum að þú viljir kaupa með ÞG Sjóð sem meðeiganda og leggðu inn tilboð.
Kauptu með okkur
Leigusamningur og sameignarsamningur eru gerðir með kauptilboði. Ef tilboð er samþykkt og fjármögnun tryggð er gerður kaupsamningur við ÞG Sjóð. Fasteignasalinn aðstoðar í ferlinu.
Býrð í allri eigninni
Við afhendingu flytur þú inn og býrð með fullum afnotarétti, alveg eins og þú ættir hana að öllu leyti sjálf/ur. Á samningstímanum greiðir þú mánaðarlega leigu af hlut ÞG Sjóðs. Þú getur keypt hlut ÞG Sjóðs eða selt eignina hvenær sem er á samningstímanum.
Baughamar
ÞG Verk kynnir glæsilegt 55 íbúða verkefni í Hamranesi. Íbúðirnar eru hannaðar með nútímalegum og vönduðum lausnum sem tryggja þægindi og gæði. Kynntu þér fjölbreytt úrval íbúða, allt frá hentugum stúdíóíbúðum til rúmgóðra fjölskylduíbúða. Það skiptir máli að velja rétt þegar kemur að heimili – þar sem þér líður best. Veldu traustan byggingaraðila sem leggur metnað í gæði og áreiðanleika.
- Íbúðir til sölu55
- AfhendingartímiMars/apríl 2026
- Stærðir íbúða64-139 m²

Hvað er Aparta?
Aparta gerir þér kleift að kaupa íbúð á sveigjanlegri hátt. Hvort sem þú ert að kaupa þína fyrstu íbúð eða næstu, gerir Aparta það auðveldara að velja heimilið sem hentar þér best. Aparta þjónustar þig í gegnum allt ferlið og á samningstímanum.
ÞG Sjóður fjárfestir með þér – allt að 20% af kaupverðinu. Við eigum eignina saman, en þú býrð í allri íbúðinni og hefur full afnotaréttindi. Síðar getur þú keypt hlut ÞG Sjóðs eða selt eignina.
Samningsskilmálar í stuttu máli:
- ÞG Sjóður fjárfestir með þér 20% af kaupverðinu í gegnum Aparta
- Sveigjanlegt samningstímabil: 3–10 ár
- Þú býrð í íbúðinni og greiðir fasta mánaðarlega húsaleigu
- Húsaleigan er verðtryggð eins og almennt tíðkast með langtíma leigusamninga
